Í september kynntu Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú verkefni sín fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði Reykjanesbæjar og heimsóknin var rædd í bæjarstjórn. [Lesa frétt Víkurfrétta] Verkefnin sem nefnd voru í fréttinni eru fyrstu skrefin.
Hér er heildarmyndin: það sem er þegar í vinnslu og þau stærri markmið sem byggja á íbúakönnun samtakanna.
In September, the Ásbrú Residents' Association presented its projects to Reykjanesbær's Environment and Public Works Council, and the visit was discussed at the town council. [Read the Víkurfréttir article] The projects mentioned in the article are first steps.
Here is the full picture: what is already in progress, and the larger goals based on our resident survey.
Hvað segir könnunin: Gróður og græn svæði eru meðal þriggja efstu forgangsmála íbúa (44%). Ánægja með umhirðu og hreinlæti mælist neikvæð (63% óánægð), sömuleiðis með leiksvæði og göngu- og hjólastíga.
Stóra myndin:
Samfélagsgarðar í Ásbrú, sambærilegir við Skrúðgarðinn í Keflavík, garðinn í Njarðvík eða Hellisgerði og Víðistaðatún í Hafnarfirði.
Föst ábyrgð á viðhaldi grænna svæða: núverandi gróður lagfærður, árlegt viðhald tryggt og nýjum gróðri bætt við.
Endurnýjun leiksvæða, þar á meðal þeirra sem hafa verið fjarlægð á undanförnum árum.
Minni leiksvæði og útisvæði til íþrótta dreifð um hverfið, staðsett þannig að börn þurfi sem sjaldnast að fara yfir götur.
Innileiksvæði þar sem börn geta leikið sér þegar veður leyfir ekki útiveru, líkt og áður var til í hverfinu.
Skýrari kröfur um viðhald og umgengni á lóðum, einnig tómra bygginga.
Fyrstu skref:
Skoðunarferð með garðyrkjufræðingi og fyrstu drög að gróðursetningaráætlun.
Kortlagning grænna svæða og vettvangsúttekt á leiksvæðum, unnin af sjálfboðaliðum.
Úrbætur á ruslaskýlum: íbúar hafa kallað eftir lokuðum, læstum skýlum. Unnið í áföngum í samstarfi við eigendur bygginga.
Hreinsunardagur íbúa.
What the survey says: Green spaces are among residents' top three priorities (44%). Satisfaction with upkeep and cleanliness is negative (63% dissatisfied), as it is for playgrounds and walking and cycling paths.
The big picture:
Community parks in Ásbrú, comparable to those in Keflavík, Njarðvík and Hafnarfjörður.
Clear responsibility for maintaining green spaces: existing greenery restored, annual upkeep secured and new planting added.
Renewed playgrounds, including ones removed in recent years.
Smaller playgrounds and outdoor sports areas spread across the neighbourhood, placed so children rarely need to cross streets.
An indoor play space for days when the weather keeps children inside, as the neighbourhood once had.
Clearer requirements for the upkeep of lots, including vacant buildings.
First steps:
A walkthrough with a landscape gardener and a first draft planting plan.
Volunteer mapping of green spaces and a field survey of playgrounds.
Better bin shelters: residents have asked for closed, lockable shelters. To be done in stages together with building owners.
A resident clean-up day.
Hvað segir könnunin: 81% íbúa telja nýjan eða stækkaðan skóla mikilvægan, 92% foreldra og 75% annarra íbúa. Ánægja með núverandi skóla mælist nálægt núlli. Krafan snýst því ekki um óánægju með skólastarfið heldur um að skólahúsnæðið standist samanburð og þjóni hverfinu til framtíðar.
Stóra myndin:
Fullbúinn skóli með sundlaug, íþróttahúsi, verklegri kennsluaðstöðu og bókasafni.
Góð bráðabirgðalausn ef byggður verður nýr skóli.
HSÁ verði viðurkenndur viðmælandi í ákvörðunum um skólamál hverfisins.
Fyrstu skref:
Úrbætur á öryggi, lýsingu og merkingum við skólann, óháð framtíðaráætlunum.
Fleiri tómstundir fyrir börn og ungmenni, innan- og utandyra.
Lausn á samgöngum barna og ungmenna í íþróttir í Keflavík, annaðhvort með betri almenningssamgöngum eða íþróttastarfi í Ásbrú sjálfu.
What the survey says: 81% of residents consider a new or expanded school important, including 92% of parents and 75% of other residents. Satisfaction with the current school is close to neutral. The demand is therefore not about dissatisfaction with the school's work, but about school facilities that measure up and serve the neighbourhood into the future.
The big picture:
A complete school with a swimming pool, sports hall, workshop facilities and a library.
A good interim solution if a new school is built.
HSÁ recognised as a partner in decisions on the neighbourhood's schools.
First steps:
Improved safety, lighting and signage at the school, regardless of future plans.
More leisure activities for children and young people, indoors and out.
Solving transport for children and young people to sports in Keflavík, either through better public transport or sports activities in Ásbrú itself.
Hvað segir könnunin: 61% íbúa eru óánægð með strætóþjónustu á kvöldin og um helgar. Í beinum ferðum með strætó á hverja 10.000 íbúa er Reykjanesbær með 2,1 ferð á virkum dögum, samanborið við 11,8 á Akranesi og 14,3 í Árborg.
Stóra myndin:
Tíðari strætóferðir, einnig á kvöldin og um helgar.
Heildarúttekt á götum hverfisins: gangbrautir, lýsing, merkingar, hraðahindranir og skemmdar gangstéttarbrúnir.
Vel upplýstir göngu- og hjólastígar innan hverfisins og til Keflavíkur, Njarðvíkur og flugvallarins.
Fyrstu skref:
Ódýrustu úrbætur í samgöngum fyrst, á meðan stærri breytingar eru í vinnslu.
Vettvangsúttekt á lýsingu og öryggi gönguleiða.
What the survey says: 61% of residents are dissatisfied with evening and weekend bus service. Reykjanesbær has 2.1 direct weekday bus trips per 10,000 residents, compared with 11.8 in Akranes and 14.3 in Árborg.
The big picture:
More frequent buses, including evenings and weekends.
A full audit of the neighbourhood's streets: crossings, lighting, signage, speed bumps and damaged kerbs.
Well-lit walking and cycling paths within the neighbourhood and to Keflavík, Njarðvík and the airport.
First steps:
The cheapest transport improvements first, while larger changes are worked out.
A field survey of lighting and safety along walking routes.
Hvað segir könnunin: Verslun og þjónusta er meðal þriggja efstu forgangsmála (44%) og mælist með minnstu ánægju af öllum 18 þáttum könnunarinnar (66% óánægð). 84% íbúa vilja matvöruverslun í hverfið, 68% afþreyingu, 47% heilsugæslu og 47% kaffihús.
Stóra myndin:
Fjölbreytt þjónusta í hverfið: matvöruverslun, kaffihús og aðrir þjónustuaðilar.
Hverfi sem er aðlaðandi fyrir fyrirtæki að hefja starfsemi í.
Rödd íbúa í skipulagsmálum hverfisins.
Fyrstu skref:
Byrja smátt: jafnvel lítil matvöruverslun er góð byrjun.
Kortlagning lausra atvinnuhúsnæða sem henta fyrir verslun og þjónustu.
Samtal við verslunarkeðjur og þjónustuaðila um rekstrarforsendur í Ásbrú.
HSÁ hefur óskað eftir vikulegri viðveru heilbrigðisstarfsfólks í hverfinu, í tengslum við nýtt hjúkrunarheimili við Keilisbraut.
What the survey says: Retail and services are among residents' top three priorities (44%) and have the lowest satisfaction of all 18 factors surveyed (66% dissatisfied). 84% want a grocery store in the neighbourhood, 68% entertainment, 47% a health clinic and 47% a café.
The big picture:
Diverse services in the neighbourhood: a grocery store, a café and other providers.
A neighbourhood that is attractive for businesses to set up in.
A resident voice in local planning.
First steps:
Start small: even a small grocery store is a good beginning.
Mapping vacant commercial spaces suitable for shops and services.
Talking with retail chains and service providers about the business case for Ásbrú.
HSÁ has requested a weekly presence of health professionals in the neighbourhood, linked to the new nursing home on Keilisbraut.
Hvað segir könnunin: 63% íbúa segja óljóst hver beri ábyrgð á málum hverfisins og 78% þeirra hafa lent í því að mál falli milli aðila. 90% íbúa sýna áhuga á að taka þátt í starfinu.
Stóra myndin:
Skýr leið fyrir ábendingar: Reykjanesbær hefur staðfest að taka við ábendingum frá HSÁ og koma þeim til réttra aðila.
Reglulegir opnir fundir þar sem íbúar geta hitt stjórn HSÁ.
Árleg hverfishátíð fyrir allt hverfið.
Hrekkjavaka, jólaviðburðir, útimarkaður með lifandi tónlist og skautasvell.
Samkomurými fyrir mismunandi aldurshópa, svo allir eigi sinn stað allt árið.
Fyrstu skref:
Undirbúningur hverfishátíðar.
Einfaldar samverustundir í vetur, til dæmis spilakvöld og bingó.
What the survey says: 63% of residents say it is unclear who is responsible for neighbourhood issues, and 78% of those have seen issues fall between parties. 90% of residents are interested in taking part.
The big picture:
A clear route for feedback: Reykjanesbær has confirmed it will receive feedback from HSÁ and pass it to the right parties.
Regular open meetings where residents can meet the HSÁ board.
An annual neighbourhood festival for everyone.
Halloween, Christmas events, an outdoor market with live music, and an ice rink.
Gathering spaces for different age groups, so everyone has a place all year round.
First steps:
Planning the neighbourhood festival.
Simple get-togethers this winter, such as game nights and bingo.
Síðast uppfært: 27. september 2026 / Last updated: 27 September 2026