Um Hagsmunasamtök Íbúa á Ásbrú

Hlutverk

Samtökin eru málsvari íbúa Ásbrúar. Hlutverk þeirra er að safna og setja fram upplýsingar um aðstæður í hverfinu, koma sjónarmiðum íbúa á framfæri við sveitarfélagið og aðra hlutaðeigandi, og vinna að úrbótum í samstarfi við þá aðila sem bera ábyrgð.

Samtökin taka ekki afstöðu til flokkspólitískra mála.